Þjónusta

Rafverk frá einni tengingu upp í heila töflu.

Við tökum að okkur nýlagnir, breytingar og viðhald fyrir heimili, húsfélög og fyrirtæki, ásamt undirverktöku fyrir aðalverktaka.

Nýjar dósir og lögn settar í vegg í nýbyggingu.

Nýlagnir

Heildarraflögn í nýbyggingar, viðbyggingar og rými sem verið er að taka í notkun. Unnið eftir teikningum og skilað tilbúnu í úttekt.

  • Íbúðarhús, sumarhús og atvinnuhúsnæði
  • Lagnaleiðir, dósir, töflur og tengingar
  • Skráning og skil á gögnum

Breytingar og viðhald

Endurnýjun á eldri lögnum, fleiri tenglar, ný lýsing eða lagfæring á því sem virkar ekki lengur eins og það á að gera.

Netlagnir og gagnalagnir

Strúktúrerð netlögn, tengiskápar og punktar þar sem þú þarft þá. Mælt og merkt svo næsti maður finni réttan enda.

Aðaltafla fyrir og eftir endurnýjun.

Töfluskipti og töflusmíði

Gamlar töflur með vartappa eiga ekki heima í húsi sem á að seljast. Við skiptum yfir í nútímatöflu með lekaliðum, merktum útslætti og plássi fyrir það sem kemur næst.

  • Yfirferð á núverandi töflu og álagi
  • Skipti oftast kláruð á einum degi
  • Merking og skjölun á öllum rásum
Uppsett hleðslustöð með dökkum front á húsvegg.

Hleðslustöðvar

Uppsetning á hleðslustöðvum fyrir rafbíla, jafnt við einbýli og í sameign fjölbýlis. Við sjáum um töfluna, lögnina og stöðina sjálfa, ekki bara festinguna á vegginn.

  • Stöðin tengd, gangsett og prófuð
  • Pláss skilið eftir fyrir fleiri stöðvar síðar
  • Front í lit sem passar við húsið

Þriggja fasa og inntaksbox

Breyting úr einfasa yfir í þriggja fasa, ásamt endurnýjun á inntaksboxi þegar það er komið á tíma. Oftast gert í sömu ferð og töfluskiptin.

Lýsing og tenglar

Lýsing sem passar rýminu, tenglar þar sem þú notar þá og dimmerar sem virka með perunum þínum. Við mælum og setjum upp.

Lág- og millispenna

Iðnaðarverk, vélatengingar og dreifikerfi. Nýlagnir og breytingar á bæði lágspennu og millispennu.

Undirverktaka

Við göngum inn í stærri framkvæmdir sem rafverktaki fyrir aðalverktaka, með okkar eigin skráningu og skilum.

Þannig gengur verkið fyrir sig

Fjögur skref, engin óvænt beygja á milli þeirra.

Þú lýsir verkinu

Hringing, póstur eða mynd af töflunni. Það dugar til að byrja.

Við skoðum

Á staðnum eða eftir teikningum, eftir því hvað verkið er umfangsmikið.

Fast verð

Þú færð skriflegt tilboð með dagsetningu og því sem er innifalið.

Unnið og skilað

Við klárum, göngum frá eftir okkur og afhendum gögnin.

Segðu okkur frá verkinu.

Lýstu því í nokkrum línum eða sendu mynd. Þú færð svar og fast verð, yfirleitt samdægurs.